SAMVINNA

Git er hannað til að halda utanum verkefni með dreifðri útgáfustjórn (Distribute Version Control). Það þýðir að þátttakendur í hópverkefni eru allir með eintak af öllu verkefninu. Git sér um að hindra árekstra og eyðingu gagna sem eru í vinnslu. Mikið öryggi fellst í dreifingu verksins vegna þess að ekki er hægt að eyða öllum útgáfunum í einu eða öll vinnsla stöðvist vegna þess að miðlari (server) fer á hliðina vegna álags eða kerfishruns.

Afritun „Fork“

Töluverður munur er á aðgerðnum “Fork” og “Clone”. Þegar geymsla (repository) er gogguð „Fork“ þá færðu nýtt eintak af geymslunni sem tilheyrir þínum reikningi. Þú getur gert hvað sem er við innihald geymslunnar og það hefur engin áhrif á upprunalega geymslu. Hinsvegar ef þú villt láta höfund geymslunnar vita hvað þú ert að bralla, þá getur þú sent honum skilaboð í gegnum skilaboðakerfið „Pull request“. Þar getur höfundurinn borið saman kóðann sem þú ert með við upprunalegan kóða og ef þín lausn er betri þá er hægt að setja hana saman við upprunalegan kóða með skipuninni „Merge request“.

Speglun „Git clone“

Í hópverkefnavinnu er skynsamlegt að spegla „Git clone“ geymsluna yfir á tölvur þátttakenda þannig að allir hafa sitt eintak af verkefninu. Til að nemendur geti unnið saman í einni geymslu þá verður stofnandi geymslunnar að veita aðgang að henni. Síðan geta allir uppfært og sent efni í sömu geymslu á GitHub.

Í allri hópverkavinnu á tölvubraut á að nota GIT útgáfustjórnun og vakta verkefnin á meðan unnið er í þeim. Þegar unnið er í hópverkefnum á að byrja á því að bera saman og ná í síðustu útgáfu verksins á GitHub $ git pull. síðan á að skrá vinnuferlið reglulega í umsjónarkerfið og alltaf uppfæra verkefnið á GitHub í lok vinnudags $ git push

Þegar geymsla er spegluð (git clone) þá fylgir GIT uppsetning eigandans yfir á tölvuna þína og þegar reynt er að senda inn breytingar (git push) þá verður þú að hafa réttindi til þess.

Verklag:

  • Eftir að hafa myndað hóp þá stofnar einn úr hópnum, geymslu (repository) á GitHub
    • Síðan deilir hann aðgangi að geymslunni, með því að bæta við notendum (Settings - Manage accsess) með sömu réttindum og hann sjálfur hefur í geymslunni.
    • Notendur contributors fá sendan póst á tölvupóstfangið sem tengt er þeirra Github reikningi. Þeir samþykkja boðið og geta eftir það breytt og bætt efni í umræddri geymslu.
  • Sameiginlegri geymslu deilt á notendur
    • Í “Git Bash” er geymslan spegluð „Git clone“ yfir á tölvur hópsins þannig að allir eru með eigin útgáfu af henni.
  • Hópurinn skipuleggur alla verkþætti og verkskiptingu
    • Geymslan á GitHub er miðstöð verksin og á alltaf að vera endurnýjuð reglulega
    • Allir byrja að að tjékka á GitHub útgáfunni Git pull
    • Og enda vinnudaginn á Git push
    • Öll vinnugögn hópverkefnisins eiga að vera í þessari geymslu á Github

Project

Til að hópverkefni gangi vel þarf að skipuleggja allt vinnuferlið, það er hægt að gera með Github verkstjórn “(project) . Sjá nánar hér.

Ágreiningur (Conflict)