Git add [filename]
Efir að hafa opnað Git Bash og vísað á Git geymslu þá fylgist forritið með allri textavinnslu og breytingum á þeim. Skipanirnar $ git add [heiti skjals]' og $ git commit -m 'lýsing...' afrita stöðu verksins og Git býr til tímamót sem hægt er að fara á síðar. Þessi aðgerð er kölluð sviðsetning (staging). Skipunin $ git add . tekur allar skrár sem hafa verið breytt eða bæst við og setur þær á svið. Það má líkja Git við upptökutæki sem afritar allt sem hamrað er á lyklaborðið.
Git Commit -m ´Lýsing verkþáttar’
Eftir nokkrar skráningar höfum við myndað tímalínu og þá er hægt að fara í gegnum allt vinnuferlið, þá skiptir máli hvað var skráð í commit -m ‘’ skipunina svo hægt sé að byrja aftur á öðrum tímapunkti og tekið aðra stefnu með kóðann á nýrri grein (branch), hann getur síðan þróast samhliða upprunalegum kóða og á einhverjum tímapunkti sameinaður (merge) aðalgreininni sem nefnd er “Master”.
Tímaflakk
Til að skoða tímalínuna þá er git log skipunin notuð. Með hverri vistun fylgir skýring (commit -m) sem þú skráðir ásamt langri talnarunu “04c98c7b7744c9c6e23ba28a302710513805e89a”. Það er þessi talnaruna sem vísað er í til að komast aftur á tiltekin stað í verkferlinu. Til að komast síðan út úr log glugganum er nóg að ýta á “CTRL” + “Q”. Til að fara til baka með allt verkferlið þá er skipunin git checkout 04c98c7b77 Það þarf ekki að nota alla talnarununa til að Git finni rétta færslu.
Greinar í Git (Branches) :deciduous_tree:
Það má sjá fyrir sér Git kerfið sem tré með stofni og greinum. Stofnin er nefndur “Master” og ef þú slærð inn skipunina git branch þá birtir Git lista yfir allar greinar sem eru í notkun í geymslunni.
- Í upphafi er aðeins stofnin (Master) í geymslunni
- Til að búa til grein er skipunin
git branch [heiti greinar]notuð. - Til að fara yfir á grein er skipunin
git checkout [heiti greinar]notuð.
Git býður upp á möguleika að vera með margar útgáfur af sama kóða. Dæmi: þú vilt búa til nýja útgáfu af kóða sem þú ert að vinna í en byrja þar sem þú varst staddur 2 dögum fyrr.
git logGit birtir lista með öllum færslum (commits). Veldu fyrstu 7 tölurnar úr þeirri talnarunu sem passar við færsluna sem þú vilt komast á.- ýttu á takkann “q” til að komast úr listanum
git checkout 04c98c7-> Færir þig á eldri útgáfu af “master”git branch grein1-> býr til nýja útgáfu af kóðanum sem gerð var 2 dögum fyrr, hér getur þú tekið aðra stefnu með kóðann.
Til að sameina greinar þá þarftu að vera á þeirri grein sem verður eftir t.d.
git checkout mastergit merge grein1greinin er sameinuð “master”
Engin takmörk eru fyrir því hversu margar greinar geta verið í gangi í einu skjali en það er skynsamlegt að hafa þær fáar og blanda saman kóðanum reglulega (merge) við upprunalega útgáfu (master) eða eyða útgáfum sem eru ekki að ganga upp.
Til að eyða grein þá þarftu að vera á “master”
git -d grein1greininni er eytt, það hefur ekki áhrif á stöðu “master” eða annara greina.