GIT VERKLAG

Nemendur geta hlaðið upp verkefnum (upload files) beint í verkefnamöppurnar en það er skynsamlegt að nota þær lausnir sem GIT og Github bjóða upp á.

Til að vinna skipulega í verkefnum þarf að sækja áfangageymsluna af Github. Við tökum klón (clone) spegilmynd af áfangageymslunni yfir á okkar tölvu og vinnum öll verkefnin staðbundið (local). Til þess er best að nota GIT.

  • Við speglum áfangageymsluna “Clone Repository” og vinnum með gögnin í geymslunni staðbundið (local)
    1. Smellið á Code hnappinn og afritið kóðann sem birtist í textareitinum
      Repository Clone
    2. Opnið Git Bash og veljið hentugan stað til að setja áfangamöppuna í tölvunni
      $ cd ~/desktop/
      Skrifið git clone og límið [Shift]+[insert] HTTPS kóðann inn
      $ git clone https://github.com/21VB1/21VB1-geymsla.git
    3. Síðan er hægt að fara vinna í verkefnum áfangans. Munið að vista verkefnin reglulega í Git, $ git add .
    4. Verkefnum er síðan skilað með því að skrá $ git commit -m 'skilaboð'
      og $ git push í Git bash
    5. Það er líka hægt að nota Git í Visual Studio Code forritinu. Við tökum það fyrir í sýnikennslu
  • Þegar yngri útgáfa skjals er í víðværri (remote) geymslu þá þarf að sækja það með skipuninni $ git pull
  • Ef maður er ekki viss hver staðan er þá er tjékkað á stöðunni með $ git status.
  • Það er hægt að skrifa kóða beint í skjöl í Github geymslum, munið að vista skráninguna með “Commit”
  • Aðeins er hægt að skoða vefsíður í vafra (browser) staðbundið (local). Notið “Live Server” viðbótina í Visual Studio Code

  • Skjáfyrirlestur á Youtube Uppsetning “local” áfangageymslu